|
|
 |
| Nemendur í SJÁ102 taka þátt í Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti vor 2010 |
Áfanginn SJÁ102 er að fara í gang þessa haustönnina í Flensborgarskóla. Nemendur geta tekið þátt í sjálfboðnu starfi hjá Hafnarfjarðardeild Rauða krossins, farið á námskeið og lagt sitt af mörkum í fjáröflunarverkefni og fengið 2 einingar fyrir.
Meðal verkefna í boði eru: Heimsóknavinir, störf í Læk - athvarfi fyrir fólk með geðraskanir, ungmennastarf og starf í Rauða krossbúðinni. Nemendur fá fræðslu um hugsjónir og störf Rauða kross hreyfingarinnar og sækja annað námskeið fyrir sjálfboðaliða. Einnig munu nemendur vinna kynningar- og fjáröflunarverkefni. Nemendur skrifa dagbók um vinnu sína. Áfanginn byggir á hugmyndum um þátttökunám (service learning) og er próflaus.
|
 |
| Fjör hjá krökkunum í Mosfellsbæ. |
370 börn á aldrinum 7-12 ára sóttu sumarnámskeið Rauða krossins Mannúð og menning. Að þessu sinni voru þau haldin í Reykjavík, Kópavogi, Álftanesi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Ísafirði og Þingeyri.
Námskeiðin byggja á fræðslu og leikjum sem miða að því að börnin tileinki sér mannúðarhugsjónir Rauða krossins og tengi þær við daglegt líf. Börnin fá fræðslu um starf Rauða krossins, skyndihjálp, fjölmenningu og umhverfisvernd. Námskeiðunum var skipt eftir tveimur aldurshópum, 7-9 ára og 10-12 ára. Gjaldfrjálst var á námskeiðin og boðið var upp hádegisverð.
|
 |
| Dagbjört og Hulda á góðri stundu í Finnlandi. |
Dagana 2.-8. ágúst fóru fjögur ungmenni fyrir hönd Rauða kross Íslands í sumarbúðirnar Herzi Camp en þær eru haldnar árlega í Finnlandi. Hulda Hvönn Kristinsdóttir og Dagbjört Rós Jónsdóttir, báðar 16 ára sjálfboðaliðar í Plúsnum, fóru frá Kópavogsdeild ásamt þeim Bjarna Haukssyni frá Suðurnesjadeild og Fanneyju Sumarliðadóttur frá Stykkishólmsdeild.
Sumarbúðirnar eru ætlaðar ungmennum á aldrinum 16-29 ára, fötluðum sem ófötluðum og er markmið þeirra að auka víðsýni og færni fólks til að hjálpa einstaklingum með hamlanir. Um 45 manns dvöldu í búðunum frá fjórum löndum; Finnlandi, Íslandi, Egyptalandi og Kosovo.
|
|
|
|