Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Jarðskjálfti á Haítí

haiti_kort.jpg

Jarðskjálfti sem mældist 7,3 á richter reið yfir Haítí þann 13. janúar 2010. Upptök hans voru við höfuðborgina Port-au-Prince sem varð verst úti en einnig urðu miklar skemmdir í nágrannasveitarfélögum. Samkvæmt upplýsingum Alþjóða Rauða krossins eru um 3 milljónir manna sem þurfa á aðstoð að halda.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Haítí brugðust undir eins við, og hafa unnið í kapp við tímann við björgun og aðhlynningu slasaðra. Sjálfboðaliðarnir hafa einnig dreift hjálpargögnum af neyðarbirgðum Rauða krossins í Port-au-Prince og aðstoðað við umönnun á sjúkrahúsum sem öll eru yfirfull á hamfarasvæðinu.

Tíu neyðarteymi Alþjóða Rauða krossins voru tafarlaust send á vettvang. Þar er um að ræða sérfræðinga í dreifingu hjálpargagna, heilsugæslu, uppsetningu neyðarskýla, birgðaflutningum og hreinsun vatns, auk sérhæfðra lækna og hjúkrunarfræðinga.

Rauði kross Íslands hóf þegar landssöfnun fyrir fórnarlömb jarðskjálftans, og hafa viðbrögð almennings verið ómetanleg. Fyrsti íslenski sendifulltrúinn, Hlín Baldvinsdóttir, hélt til Haítí þann 14. janúar, tæpum 2 sólarhringum eftir að skjálftinn reið yfir. Hlín mun starfa sem fjármálastjóri í sérfræðingateymi Alþjóða Rauða krossins sem mun skipuleggja hjálparstarfið næstu vikur og mánuði.

Leitarþjónusta

Þeir sem ekki hafa náð sambandi við ástvini á Haítí geta skráð nöfn sín og þeirra hjá Alþjóðaráði Rauða krossinum Starfsmenn Alþjóða Rauða krossins á Haítí taka niður nöfn fólks á staðnum sem hefur ekki getið haft samband við ástvini erlendis.
 

Fréttir

banner3.jpg
haiti_hnappur_vettvangur.jpg
haiti_hnappur_myndasafn.jpg
banner2.jpg
Haiti_thorir.jpg