Sendifulltrúar
Hver er hvar?
Hverjum er sóst eftir?
Sendifulltrúanámskeið
Greinar
Umsóknareyðublað

Metfjöldi útsendra sendifulltrúa Rauða kross Íslands árið 2010
Aldrei hafa fleiri sendifulltrúar Rauða kross Íslands verið við störf á einu almanaksári en á árinu 2010 en þá voru 37 sendifulltrúar að störfum við 43 verkefni í 125 mannmánuði. Helstu skýringar á þessum fjölda eru viðbrögð við neyðarástandi á Haiti eftir að jarðskjálfti reið þar yfir í upphafi árs. Tuttugu og sjö sendifulltrúar stöfuðu að 28 verkefnum á Haiti á árinu í 55 mannmánuði, flestir á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í höfuðborginni Port-au-Prince.

Samanburðartafla 2005 – 2010 yfir fjölda útsendra sendifulltrúa á einu almanaksári



*Árið 2005 reið öflugur jarðskjálfti yfir í Pakistan og hjálparstarf vegna neyðarástands í kjölfar Tsunami var í fullum gangi.
Flest verkefni á heilbrigðissviði

Flest og tímafrekustu verkefni sem sendifulltrúar Rauða kross Íslands störfuðu að voru á heilbrigðissviði eða 23 verkefni í 47,5 mannmánuði samtals. Verkefni á sviði fjármála og stjórnunar voru10 talsins í 33,5  mannmánuði. Fimm verkefni voru við uppbyggingu og þróun landsfélaga  í 25 mannmánuði, 3 verkefni voru á sviði upplýsinga- og kynningarmála í 6,5 mannmánuði og 2 verkefni við flutninga og dreifingu hjálpargagna samtals í 12,5 mannmánuði.

Fyrst og fremst neyðaraðstoð í stuttan tíma í senn
Verkefni vegna neyðarástands voru 35 talsins í 73 mannmánuði árið 2010. Verkefni sem lúta aðallega að uppbyggingarstarfi og þróunarsamvinnu við önnur landsfélög voru hins vegar 8 í 52 mannmánuði.

Flestir störfuðu með neyðarteymum á tjaldsjúkrahúsi
Flest verkefni sendifulltrúanna voru með neyðarteymum annarra landsfélaga (ÞRK, NRK og FRK) eða 21 verkefni í 43 mannmánuði. Tvö verkefni voru með Alþjóðaráði Rauða krossins í 2 mannmánuði, 13 verkefni með Alþjóðasambandi Rauða krossins í 65,5 mannmánuði og 7 verkefni í samtals 14,5 mánuði að tvíhliða verkefnum Rauða kross Íslands og samstarfsfélaga á vettvangi.

Mikil nýliðun og konur fleiri en karlar
Á árinu var haldið sendifulltrúanámskeið í Munaðarnesi og bættust 22 á Veraldarvakt í kjölfarið en 16 sendifulltrúar fóru í sína fyrstu starfsferð á vegum Rauða kross Íslands. Hlutfall milli kynja var þannig að 28 konur voru við störf en 15 karlar. Til samanburðar má geta þess að árið 2009 störfuðu 14 karlar á vettvangi en 10 konur.

Einstök verkefni:
Áslaug Arnoldsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins á Haítí frá febrúar og fram í apríl.

Baldur Steinn Helgason mannfræðingur og birgðastjórnandi starfaði við birgðastjórnun í Dubaí fyrir Alþjóðasamband Rauða krossins frá febrúarbyrjun til loka ársins.

Bjarni Árnason læknir starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins á Haítí í apríl og maí.

Björk Ólafsdóttir læknir starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins á Haítí í frá júlí fram í ágúst.

Birna Halldórsdóttir mannfræðingur starfaði á Haíti í febrúar og mars með finnskri og franskri sveit við dreifingu hjálpargagna.

Birna Halldórsdóttir fór aftur til Haítí í október og starfaði sem rekstrarstjóri á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins til loka desember.

Davíð Lynch verkefnisstjóri fór i febrúar til Haítí og var einn fulltrúa Rauða kross Íslands í alþjóðlegu teymi sem vann að skipulagningu uppbyggingarstarfs Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí á næstu þremur árum.

Davíð Lynch verkefnisstjóri starfaði við neyðarstjórnun hjá Evrópuskrifstofu Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Búdapest frá júní  til ársloka.

Elín Jónasdóttir sálfræðingur fór til Haiti í lok ágúst í stutta ferð til þess að undirbúa verkefni um sálrænan stuðning.

Elín J. Oddsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á sjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí í júní. 

Erla Svava Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí í febrúar og mars og í ágúst.

Erla Svava Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur starfaði í maí og júní í Pakistan við sjúkrahús Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) í borginni Peshawar sem er nálægt landmærum Pakistans við Afganistan.

Friðbjörn Sigurðsson læknir fór til Haítí í janúar þar sem hann starfaði með læknateymi þýska Rauða krossins í einn mánuð.

Gunnar Helgason hjúkrunarfræðingur starfaði á sjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince, Haítí í júní og júlí. 

Héðinn Halldórsson fjölmiðlafræðingur var ráðgjafi og upplýsingafulltrúi í deild Alþjóðasambands Rauða krossins í Kaupmannahöfn sem sérhæfir sig í sálrænum stuðningi frá febrúar 2009 til maíloka 2010.

Helga Bára Bragadóttir mannfræðingur starfaði allt árið á Kyrrahafsskrifstofu Aþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) í Suva á Fídjíeyjum.

Hólmfríður Garðarsdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir var heilbrigðisráðgjafi Rauða kross Íslands með aðsetur í Malaví til loka október..

Herdís Sigurjónsdóttir umhverfis- og auðlindafræðingur fór í vettvangsferð til Georgíu í október vegna verkefnis um neyðarvarnir sem Rauði kross Íslands vinnur að í landinu í samstarfi við danska Rauða krossinn og sem er fjármagnað af neyðarsjóði Evróðusambandsins, ECHO.

Hlín Baldvinsdóttir rekstrarfræðingur starfaði frá byrjun mars og út árið sem fjármálastjóri dreifingar moskítóneta víðs vegar í Afríku fyrir Alþjóðasamband Rauða krossins. Verkefnið miðar að því að hefta útbreiðslu malaríu í álfunni.

Hlín Baldvinsdóttir rekstrarfræðingur fór til Haítí í janúar daginn eftir að jarðskjálftinn mikli reið yfir.  Hún gegndi í einn mánuð stöðu fjármálastjóra í sérfræðingateymi Alþjóða Rauða krossins sem metur þörf á aðstoð fyrstu vikur og mánuði eftir hamfarirnar.

Hrafnhildur Sverrisdóttir alþjóðasamskiptafræðingur var einn fulltrúa Rauða kross Íslands í alþjóðlegu teymi sem vann í febrúar að skipulagningu uppbyggingarstarfs Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí á næstu þremur árum.

Hrafnhildur Sverrisdóttir alþjóðasamskiptafræðingur hóf störf sem samskiptafulltrúi Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) í Pakistan í desember. Hrafnhildur var ráðin til eins árs og hefur umsjón með upplýsingaöflun og skýrslugerð fyrir sendinefndina í Pakistan og hefur samskipti við allar helstu stofnanir er sinna mannúðar- og þróunarstörfum í landinu.

Jóhann Thoroddsen sálfræðingur fór stutta vettvangsferð til Haítí í júní til að meta hvernig best yrði staðið að því að veita sálfélagslega aðstoð samhliða líkamlegu aðhlynningu.

Jóhannes Sigfússon lögregluvarðstjóri starfar sem öryggisfulltrúi alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) í Pakistan. Hann hóf störf í nóvember og áætlað er að hann starfi í 6 mánuði í landinu vegna hjálparstarfs Rauða krossins í kjölfar mikilla flóða í landinu í ágúst sl.

Jón Magnús Kristjánsson læknir starfaði í ágúst á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí.

Karl Sæberg Júlísson afbrotafræðingur er öryggisfulltrúi Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) með aðsetur í Genf. Karl hóf störf í janúar 2006 og var ráðinn til ársloka 2010. Karl heldur áfram störfum í Genf árið 2011 en Rauði kross Íslands er ekki lengur launagreiðandi. Hlutverk Karls er að aðstoða sendinefndir Rauða krossins við að koma upp öryggiskerfi og öryggisreglum á vettvangi.

Kristjana Þuríður Þorláksdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á sjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí frá júní til ársloka.

Kristjón Þorkelsson pípulagningameistari fór til Haíti í febrúar þar sem hann var ábyrgur fyrir skipulagningu vatnshreinsimála á meðan á neyðaraðgerðum stóð og síðar starfaði hann almennt að vatnshreinsimálum í landinu fyrir Alþjóðasamband Rauða krossins fram í miðjan september.

Lilja Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði í febrúar og mars á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au- Prince á Haítí.

Lilja Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði í nóvember og desember með alþjóðlegu teymi Rauða krossins sem veitti íbúum í Larkana í Sindh héraði í Pakistan heilbrigðisþjónustu í kjölfar mikilla flóða í landinu í ágúst.

Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí frá febrúar fram í mars.

Magna Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí í júní og júlí. 

Margrét  Rögn Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí í maí og júní. 

Maríanna Csillag hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haiti í febrúar og mars.

Ómar Valdimarsson blaðamaður gerði úttekt á verkefnum íslenskra vinadeilda og samstarfsdeilda þeirra í Gambíu, Malaví og Mósambík frá október til desember.  Markmið með úttekt Ómars var að sjá hvort takist hafi að byggja upp starfið í samstarfsdeildunum í þágu skjólstæðinga Rauða krossins.  

O. Ragnheiður Þórisdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haiti frá lokum maí til ársloka.

Ruth Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur starfaði á tjaldsjúkrahúsi þýska og finnska Rauða krossins í Port-au-Prince á Haítí í apríl og maí.

Sigríður Þormar hjúkrunarfræðingur og heilsusálfræðingur var einn fulltrúa Rauða kross Íslands í alþjóðlegu teymi sem vann í febrúar að skipulagningu uppbyggingarstarfs Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí á næstu þremur árum.

Sigurjón Valmundsson sjúkraflutninga- og slökkviliðsmaður starfaði við tjaldsjúkrahús norska Rauða krossins í Petit Goave, um 70 km. fyrir vestan Port-au-Prince á Haítí í mars og apríl.

Sólveig Björk Sveinbjörnsdóttir félagsráðgjafi var einn fulltrúa Rauða kross Íslands í alþjóðlegu teymi sem vann í febrúar að skipulagningu uppbyggingarstarfs Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí á næstu þremur árum.

Valgerður Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur starfaði við tjaldsjúkrahús norska Rauða krossins í Petit Goave, um 70 km. fyrir vestan Port-au-Prince á Haítí í apríl og maí.

Þorkell Þorkelsson ljósmyndari fór til Malaví í september með fréttamanni Stöðvar 2 til þess að taka upp myndefni af verkefnum Rauða krossins. Fréttir um starfið voru sagðar í vikunni fyrir Göngum til Góðs söfnunarátakið í byrjun október.

Þór Daníelsson viðskipta- og þróunarfræðingur hóf í nóvember störf sem sendifulltrúi fimm Rauða kross félaga sem vinna saman að sálrænum stuðningi við börn í Palestínu með aðsetur í Ramallah.