Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Aðkoma Rauða kross Íslands að málefnum hælisleitenda

Hælisleitendur

Rauði krossinn vinnur að málefnum hælisleitenda í samvinnu við stjórnvöld og í umboði Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þá hefur Rauði kross Íslands lykilhlutverki að gegna við hingaðkomu flóttamanna, sem íslenska ríkið býður hingað til lands, venjulega í 20 – 30 manna hópum. Í mörgum löndum hefur Rauði krossinn tekið að sér margvísleg störf sem tengjast flóttamönnum og hælisleitendum, enda standa þeir oft berskjaldaðir við komuna í ókunnugt land. 

Starf Rauða kross Íslands að málefnum hælisleitenda hófst árið 1987. Síðan þá hefur Rauði krossinn komið að málefnum hælisleitenda með ýmsum hætti og nú síðast með aukinni áherslu á málsvarahlutverk og réttindagæslu. Þegar bera fór á fjölgun hælisleitenda hér á landi á árunum 1998 til 1999 var undirritaður samningur á milli Rauða kross Íslands og dómsmálaráðuneytisins sem kvað á um að Rauði krossinn tæki að sér ákveðið hlutverk við móttöku og umönnun þeirra sem sóttu um hæli á Íslandi sem pólitískir flóttamenn. Samningurinn fól í sér að Rauði krossinn útvegaði hælisleitendum meðal annars húsnæði, framfærslu og lágmarks læknisaðstoð. Í lok árs 2003 rann samningurinn út og umönnunarhlutverkið fluttist yfir til Reykjanesbæjar sem sér nú hælisleitendum fyrir húsnæði, fæði og öðrum nauðsynjum.

Greinileg aukning umsókna um pólitískt hæli varð eftir að Schengen samkomulagið gekk í gildi þann 25. mars 2001. Auk þess gekk í gildi svokallaður Dyflinarsamningur (nú Dyflinarreglugerð) sem kveður á um hvaða ríki beri að taka við afgreiðslu umsóknar um hæli. Dyflinarreglugerðin hefur það í för með sér að þótt umsækjandi sæki um hæli á Íslandi getur komið í ljós að annað ríki beri ábyrgð á umsókn viðkomandi og hann verði sendur til þess ríkis þar sem umsókn hans verður tekin til umfjöllunar.

Dyflinarreglugerðin skyldar þó ekki ríki til að senda hælisleitendur, sem eiga eða hafa átt umsókn í öðru aðildarríki reglugerðarinnar, til baka heldur er ríkjum heimilt að taka slíka hælisumsókn til efnislegrar meðferðar í samræmi við mannúðarákvæði reglugerðarinnar.

Hér til hliðar má finna ýmsar upplýsingar sem varða málefni hælisleitenda. Allar upplýsingar og ábendingar eru vel þegnar (atli@redcross.is)

flotti.jpg