í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Rauða krossinn og Þróunarsamvinnustofnun Íslands
Námskeiðið fjallar um þróunarsamvinnu, neyðaraðstoð, mannúðarstarf og friðaruppbyggingu. Þátttakendur fá innsýn í störf á vettvangi, stefnur og starfsemi ólíkra stofnana, þátttöku Íslands í verkefnum á þessu sviði og fá að spreyta sig sjálf á krefjandi verkefnum og taka þátt í umræðum.
Fræðslan verður sett í samhengi við Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun og hvernig ólík verkefni ólíkra aðila skiptast. Hvatt verður til öflugrar umræðu um hvers kyns álitamál sem eru ofarlega á baugi á þessum vettvangi.
Skráningarfrestur er til 29. febrúar.
Fjölmargir fyrirlesarar koma að námskeiðinu og deila reynslusögum frá störfum sínum á vettvangi. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, hópavinnu og umræðum.
Hvenær:
Fös. 9. mars kl. 13:00 – 18:00, lau. 10. mars kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00, fös. 23. mars. kl. 13:00 – 18:00, lau. 24. mars. kl. 9:00 – 12:00 og 13:00 – 16:00 og sun. 25. mars kl. 11:00 – 14:00
Verð: 38.000 kr.
Hvar: Endurmenntun, Dunhaga 7.
Skráning og nánari upplýsingar
| Deila þessari frétt: |
|
|