Þriðjudagur 15. maí:
Taiwan – Létt og skemmtileg kynning á landi, menningu og þjóð. Léttur hádegisverður að hætti Taiwan búa. Umsjón: Snæfríður Grímsdóttir, kl. 11.
Skákmót – Skákfélag Vinjar heldur hraðskákmót í Rauðakrosshúsinu, Þverholti 7. Tefldar verða sex umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma og boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar í hléi. Bókavinningar fyrir efstu sætin sem og happadrætti. Þetta verður huggulegt og kostar ekki krónu. Kl. 13:15.
Miðvikudagur 16. maí:
Prjónahópur – Opinn hópur fyrir sjálfboðaliða í verkefninu Föt sem framlag og aðra handavinnuunnendur. Garn og prjónar á staðnum, kl. 13.
Fimmtudagur 17. maí:
Uppstigningadagur – LOKAÐ.
Mánudagur 21. maí:
Pökkun ungbarnapakka fyrir hjálparstarf í Hvíta Rússlandi – Sjálfboðaðliðar hafa unnið hörðum höndum í vetur við að útbúa föt í sérstaka ungbarnapakka. Í hverjum pakka eru: 1 teppi, 1 buxur, 2 peysur, 1 húfa, 2 samfellur, 1 handklæði og 1 teppi. Nú er komið að pakka inn afrakstri síðustu mánaða. Allir velkomnir til aðstoðar. Kl. 13.
Þriðjudagur 22. maí:
Sumarlokahátíð – Fögnum farsælu starfi í vetur og komandi sumri. Hlökkum til að sjá alla þá sem heimsótt hafa Rauðakrosshúsið í vetur og fyllt það af gleði og glaum. Kl. 13.
Miðvikudagur 23. maí:
Prjónahópur – Síðasti prjónahópur vetrarins. kl. 13.
Fimmtudagur 24. maí:
Atvinnuleit – Þarft þú aðstoð við að skella saman söluvænni ferilskrá, eða fá leiðbeiningar fyrir atvinnuviðtal? Kl. 11.
| Deila þessari frétt: |
|
|