Sendifulltrúar í Indónesíu
Þann 26. desember 2004 urðu náttúruhamfarir í Suður-Asíu sem teljast með þeim mannskæðustu í sögunni. Alþjóða Rauði krossinn sendi strax sama dag út hjálparbeiðni og á síðustu dögum ársins héldu fyrstu tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands til starfa á svæðinu, einn til að meta þörf fyrir áfallahjálp, annar til að taka þátt í samhæfingu aðgerða með skýrslugerð. Fyrir á svæðinu var þriðji sendifulltrúinn að störfum við þróunarsamvinnu.
Neyðaraðstoð í kjölfar Tsunami einkenndi störf sendifulltrúa Rauða kross Íslands á árinu 2005 en Rauða kross hreyfingin tók strax þátt í björgunaraðgerðum og síðar í uppbyggingarstarfi í löndunum við Indlandshaf.
Árið 2006 skipulögðu sendifulltrúar Rauða kross Íslands sálfélagslega þjónustu við fórnarlömb Tsunami á Sri Lanka og tóku þátt í uppbyggingu heilsugæslu ásamt því að skipuleggja almennt hjálparstarf í Acehéraði á eynni Súmötru í Indónesíu.
|
|