|
Á skólavef Rauða krossins má nálgast ýmis konar fræðsluefni og þemaverkefni fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum, svo sem um skyndihjálp, sálrænan stuðning, hjálparstarf innanlands og utan og vefleik um líf flóttafólks. Fræðsluefnið hentar vel við kennslu, meðal annars í samfélagsfræði og lífsleikni.
Skólafræðsla er hluti af starfi Rauða krossins og Rauða hálfmánans víða um heim. Markmiðið er að kynna hugsjónir og grundvallarmarkmið hreyfingarinnar fyrir ungu fólki á uppvaxtarárunum enda hefur slík kynning uppeldis– og samfélagslegt gildi.
Heimsóknir til skóla
Sjálfboðaliðar og starfsmenn víða um land heimsækja skóla og kynna starf Rauða krossins fyrir ungu fólki. Rauði krossinn í heimabyggð eða landsskrifstofan tekur á móti beiðnum um kynningar.
Þeir kennarar sem treysta sér til að kynna sjálfir starfsemi Rauða krossins fyrir nemendum geta nálgast stuðningsefni og leiðbeiningar hér á skólavefnum.
|
|
Mórall - Vetrarstarfið hafið
06.09.2010
Mórall er hópur krakka á aldrinum 13-16 ára sem hittist alla mánudaga klukkan 20 í húsnæði Kjósarsýsludeildar Rauða krossins að Þverholti 7 í Mosfellsbæ.
Krakkarnir fræðast um Rauða krossinn, vinna verkefni tengd hugsjónum og starfi Rauða krossins um allan heim, fara í ferðir og hitta aðrar ungmennadeildir. Það kostar ekkert að vera með. Komdu og kíktu ef þú þorir....
Dagskráin fram að jólum er fjölbreytt og má þar nefna fótboltamót, umhverfisfræðslu, heimsókn í aðra deild, skyndihjálparfræðsla, fataflokkun, markað, brjóstsykurgerð og fleira.
Lesa meira...
|
|
SJÁ 102 í Flensborgarskóla
01.09.2010
 |
| Nemendur í SJÁ102 taka þátt í Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti vor 2010 |
Áfanginn SJÁ102 er að fara í gang þessa haustönnina í Flensborgarskóla. Nemendur geta tekið þátt í sjálfboðnu starfi hjá Hafnarfjarðardeild Rauða krossins, farið á námskeið og lagt sitt af mörkum í fjáröflunarverkefni og fengið 2 einingar fyrir.
Meðal verkefna í boði eru: Heimsóknavinir, störf í Læk - athvarfi fyrir fólk með geðraskanir, ungmennastarf og starf í Rauða krossbúðinni. Nemendur fá fræðslu um hugsjónir og störf Rauða kross hreyfingarinnar og sækja annað námskeið fyrir sjálfboðaliða. Einnig munu nemendur vinna kynningar- og fjáröflunarverkefni. Nemendur skrifa dagbók um vinnu sína. Áfanginn byggir á hugmyndum um þátttökunám (service learning) og er próflaus.
Lesa meira...
|
Eldri fréttir
|
|
|
|