Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Fræðsla og útgáfa

Fræðsla er hluti af málsvarastarfi Rauða kross Íslands, sem er eitt af fjórum kjarnaverkefnum Rauða krossins og Rauða hálfmánans um allan heim. Einkum leggur félagið áherslu á skólafræðslu, með það að markmiði að kynna hugsjónir og grundvallarmarkmið hreyfingarinnar fyrir ungu fólki á uppvaxtarárunum.

Rauði kross Íslands hefur gefið út fjölda rita sem notuð eru í skólum eða dreift á annan hátt. Hér er að finna flest þau rit sem gefin hafa verið út og eru í notkun. Í flestum tilvikum er hægt að panta ritin hjá aðalskrifstofu Rauða kross Íslands.