Hér er að finna fimmtán spurningar sem hjálpa fólki að átta sig á skyndihjálparkunnáttu sinni.
Þegar svar hefur verið ákveðið skal styðja á númerið fyrir framan svarmöguleikann.
1. Spurning
Þriggja ára sonur þinn er með hita. Hann liggur í rúminu með sængina yfir sér. Skyndilega fær hann kröftuga krampa í andlitið og augun ranghvolfast. Þú kippir sænginni af honum og sérð þá að líkaminn er stífur og hristist ótt og títt.
Hvernig bregst þú við?
Þú lætur drenginn liggja áfram í rúminu og heldur honum föstum til að hann skaði ekki sjálfan sig. Síðan hringir þú í lækni.
Þú setur skeið í munn drengsins svo hann geti ekki bitið sig í tunguna eða kafnað. Síðan hringir þú í lækni.
Þú tekur drenginn úr rúminu og kælir enni hans og framhandleggi. Síðan hringir þú í lækni.
2. spurning
Þú ert með matarboð og einn gestanna verður fyrir því óláni að matarbiti hrekkur ofan í hann. Hann getur ekki talað, andað né hóstað og blánar í framan. Hvernig bregst þú við?
Þú slærð fimm sinnum á brjóstkassann á honum og gefur honum vatn að drekka.
Þú beitir Heimlich-takinu strax á gestinn.
Þú slærð fimm sinnum á milli herðablaðanna. Ef ekkert gerist þá beitir þú kviðþrýstingi (Heimlich-takinu) fimm sinnum.
3. spurning
Dóttir þín sem er 12 ára dettur af hjólinu sínu og framtönn hennar losnar og dettur úr tannstæðinu. Tönnin (og rótin) er alveg óskemmd en hún varð skítug þegar hún datt á gangstéttina. Hvernig bregst þú við?
Þú skolar óhreinindin varlega af tönninni og setur tönnina aftur í tannstæðið eða í mjólk. Síðan ferð þú með barnið til tannlæknis.
Þú burstar tönnina með tannbursta og leggur hana í sótthreinsandi vökva. Síðan ferð þú með barnið til tannlæknis.
Þú skolar tönnina og geymir hana í hreinum klút. Síðan ferð þú með barnið til tannlæknis.
4. spurning
Vinur þinn ætlar að hjálpa þér að flytja sófasett. Þegar hann lyftir sófanum rekur hann upp org, grípur um bakið á sér og fellur niður á hné. Hann getur með engu móti staðið upp aftur. Hvernig bregst þú við?
Þú hjálpar honum á fætur og kennir honum að teygja á vöðvanum (biður hann að beygja sig fram og gera kryppu á bakið).
Þú færð hann til að snúa sér yfir á magann og setur kælipoka á bakið á honum.
Þú aðstoðar hann við að komast í hvíldarstöðu þar sem púðar styðja vel við bakið og lætur hann hvílast. Ef verkirnir halda áfram þarf að hringja á lækni eða fara á slysamóttöku.
5. spurning
Þú verður vitni að því að karlmaður missir framan af fingri við vinnu á smíðaverkstæði. Hvernig bregst þú við?
Þú reynir að stöðva blæðinguna með því að hnýta band fast utan um upphandlegg (til að stöðva blóðrásina). Síðan setur þú afhöggna hlutann í munn þess slasaða og hringir á sjúkrabíl.
Þú segir viðkomandi að leggjast niður og halda hendinni lóðrétt upp í loft. Þú setur afhöggna hlutann í plastpoka og lokar honum og setur í ílát fullt af ísmolum. Svo hringir þú á sjúkrabíl.
Þú þrýstir fingri beint ofan í sárið til að stöðva blæðinguna. Þú setur afhöggna hlutann í bréfpoka og hringir á sjúkrabíl.
6. spurning
Þú ert í lyftu og kona sem stendur við hlið þér fellur skyndilega á gólfið. Þú spyrð hvort þú getir aðstoðað hana en hún svarar engu. Hvernig bregst þú við?
Þú kannar strax viðbrögð við áreiti og hvort öndun er eðlileg.
Þú lyftir höfðinu frá gólfi og losar um föt hennar svo ekkert þrengi að.
Þú opnar öndunarveg og beitir blástursaðferð.
7. spurning
Þú verður vitni að árekstri tveggja bíla. Annar bílstjórinn missir meðvitund við áreksturinn. Hvernig bregst þú við?
Þú tryggir öryggi á slysstað með því að setja öryggisþríhyrning á veginn. Þú dregur þann meðvitundarlausa út úr bílnum með hraði.
Þú hringir strax á sjúkrabíl og kannar svo ástand hins slasaða.
Þú tekur hann út úr bílnum og leggur á grúfu, veitir skyndihjálp við losti og hringir eftir sjúkrabíl.
8. spurning
Barnið þitt drakk hreinsiefni, nánar tiltekið stíflueyði fyrir pípulagnir. Barnið finnur mikið til í vörum, munni og hálsi. Hvernig bregst þú við?
Þú ferð strax með barnið á slysamóttökuna.
Þú gefur barninu uppsölulyf og hringir á sjúkrabíl.
Þú gefur barninu vatn eða mjólk að drekka og hringir strax á sjúkrabíl.
9. spurning
Smábarn brennir sig á bakarofnshurð. Því bregður mjög og hágrætur. Þú sérð að lófar þess verða rauðar og það hefur augljóslega brennt sig. Hvernig bregst þú við?
Þú setur strax græðandi smyrsl á hendurnar.
Þú kælir lófana í nokkrar mínútur og fylgist vel með hvort blöðrur myndast næstu klukkustundirnar. Ef þú finnur blöðrur þá stingur þú á þær með sótthreinsaðri nál.
Þú kælir lófann strax með hreinu 10-25 gráðu heitu vatni og heldur kælingunni áfram þar til sársaukinn er horfinn.
10. spurning
Þú býður foreldrum þínum í matarboð. Eftir matinn kvartar mamma þín um meltingaróþægindi. Hún finnur líka til í maganum og alla leið upp í háls. Hún er sannfærð um að þetta sé magakveisa sem líði hjá. Móðir þín hefur verið heilsuhraust en fékk hjartaáfall fyrir fáeinum árum. Hvernig bregst þú við?
Þú gerir ekkert og treystir því sem móðir þín segir.
Þú biður mömmu þína um að leggjast og hvíla sig en hringir í Neyðarlínuna, 112.
Þú gefur henni verkjatöflur og segir henni að leggja sig. Þú hringir á lækni ef henni líður ekki betur á eftir.
11. spurning
Vinur þinn er með uppköst og niðurgang. Hann borðaði á veitingastað í hádeginu og heldur jafnvel að maturinn hafi orsakað þessa líðan. Hvernig bregst þú við?
Þú gefur honum lyf sem dregur úr niðurgangi.
Þú segir honum að leggja sig og leggur áherslu á að hann drekki vökva.
Þú hringir strax á lækni.
12. spurning
Þú verður vitni að því að barn er bitið af hundi. Hvernig bregst þú við?
Þú fangar hundinn og lætur rannsaka hann með tilliti til smitandi sjúkdóma, eins og hundaæðis.
Þú stöðvar blæðinguna og hreinsar sárið.
Þú drífur þig strax með barnið til læknis.