 |
| Sigmar Georgsson formaður Vestmannaeyjardeildar Rauða krossins tekur á móti börnunum í bíóinu. |
Rauði krossinn í Vestmannaeyjum bauð öllum börnum sem hafa safnað með tombólusölu eða öðrum hætti og styrkt með því starf Rauða krossins í bíó í gær á myndina Planet 51.
Krakkarnir fengu græna miða við innkomuna í bíóið en ekki rauðan og fyrir vikið fengu þau popp og kók með miðanum og allt frítt. Krakkarnir skemmtu sér að sjálfsögðu mjög vel.
Síðustu þrjú ár hafa börn í Malaví verið styrkt með þeim peningum sem börn á Íslandi safna til styrktar Rauða krossinum. Þetta árið verða það hins vegar börnin á Haítí sem njóta stuðnings barnanna.