Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Á níræðisaldri og prjónar sokka og vettinga 05.02.2010
Héðinn styllti sér upp með henni Heiðu. Í bakgrunni sést í sokka sem Héðinn hefur prjónað.

Hann Héðinn Höskuldsson er einn af mörgum sem leggja Rauða krossinum lið. Þó er það með nokkuð sértökum hætti fyrir mann á níræðisaldri, en hann  er nefnilega vel liðtækur með prjónana og prjónar af miklum myndarskap.

Að sögn þá lærði hann að prjóna á unglingsárum og hefur haldið því áfram til þessa dags. Hann hefur m.a. prjónað bæði á börnin og barnabörnin og nú er það líka Akureyrardeild Rauða krossins sem nýtur þessa hæfileika Héðins.

Margar deildir Rauða krossins starfa að verkefninu Föt sem framlag. Þar koma sjálfboðaliðar á öllum aldri saman og hanna, prjóna og sauma fatnað. Afurðirnar eru seldar á mörkuðum deilda eða í Rauðakrossbúðunum.

Alltaf er þörf fyrir hvers kyns prjónavörur í verslunum Rauða krossins. Ágóðinn af sölunni skilar sér í Hjálparsjóð. Fjármunir úr Hjálparsjóðnum nýttast til þróunar- og neyðaraðstoðar erlendis. Einnig eru útbúnir ungbarnapakkar sem sendir eru til landa þar sem neyð ríkir.
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook