 |
Ég gerðist sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum síðastliðið haust, bæði til að stytta mér stundir í langri atvinnuleit en líka til að láta gott af mér leiða. Ég tölti einn daginn niður á Reykjavíkurdeild og úr varð að fimmtudagar eru nú Rauða kross dagar:)
Það kom mér verulega á óvart hvað starfið í Rauða krossbúðinni (í mínu tilfelli á Laugavegi 116) er gefandi. Fimmtudagar eru núna nokkurs konar hátíðardagar í mínu lífi og ég labba ávallt glöð í sinni á vaktina mína. Það er einhver "feel good" tilfinning sem umleykur mann eftir vaktirnar þar sem maður veit að maður hefur látið gott af sér leiða þann daginn og gefið til baka til samfélagsins.
Það er óhætt að segja að Rauða kross starfið hefur hjálpað mér við að stytta stundirnar í atvinnuleit sem átti reyndar ekki að eiga sér stað. En það er einnig gott að vita að maður er að aðstoða við að safna fjármunum sem fara óskiptir til hjálparstarfs erlendis. Á fræðslufundi sem haldinn var í vikunni fengum við að vita að þetta eru nokkrir tugir milljóna sem fatasöfnunarstarfið er að framleiða og gefa af sér.
Ég hef einnig verið viðloðin heimanámsaðstoðina í Gerðubergi frá því hún byrjaði í haust (verkefnið heitir Heilahristingur). Það er mjög gefandi að hjálpa innflytjendum með heimanám og ég kem ávallt heim reynslunni ríkari eftir veruna í Gerðubergi.
Ég mæli eindregið með sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins fyrir alla sem hafa tíma aflögu og vilja láta gott af sér leiða. Það er einstaklega auðvelt að gerast sjálfboðaliði, maður einfaldlega mætir og síðan er fundið út hvað hentar manni best.
Það er sælla að gefa en að þiggja,
hlýjar kveðjur,
Svava Ólafsdóttir