Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Hjálparstarf Rauða krossins á Haítí komið á fullan skrið 28.01.2010
Hjálparliði frá kólumbíska Rauða krossinum hlúir að sjúklingum á tjaldsjúkrahúsi Rauða krossins í Port-au-Prince.

Á þeim rúmu tveimur vikum sem liðnar eru frá því jarðskjálftinn mikli reið yfir Haítí hefur Rauði krossinn aðstoðað hundruð þúsunda manna með dreifingu lífsnauðsynlegra hjálpargagna, hreinsun vatns og læknisþjónustu fyrir sjúka og slasaða. Neyðaraðgerðir hafa gengið framar vonum þrátt fyrir erfiðar aðstæður og að erfitt sé að koma hjálpargögnum inn í landið.

Rauði krossinn hefur hreinsað um 2,5 milljónir lítra af vatni en það svarar þörfum 100,000 manns á dag.  Vatninu er dreift til íbúa Port-au-Prince og Leogane, til tjaldsjúkrahúsa Rauða krossins, og á svæði þar sem almenningur hefur safnast saman undir berum himni.

Mörg þúsund tonn af hjálpargögnum Rauða krossins hafa nú borist til Haítí með flugi og einnig landleiðina í gegnum Dóminíska lýðveldið. Um er að ræða matvæli, tjöld, segldúka, teppi, hreinlætisvörur, eldhúsáhöld og vatnsfötur.  Þá mun Rauði krossinn einnig dreifa efni svo sem segldúkum, timbri og bárujárni fyrir fólk til að reisa sér eigin bráðabirgðahúsnæði. Heilsugæslusveitir Rauða krossins geta sinnt um 500 sjúklingum á dag. Þá hafa tjaldsjúkrahús verið sett upp á tveimur stöðum þar sem hægt er að hlúa að um 500 manns á dag, og framkvæma flóknar skurðaðgerðir.
 
„Við höfum fregnir af því að loftkælibúnaður fyrir skurðstofurnar sem var meðal hjálpargagna sem Rauði kross Íslands sendi til Haítí, hafi komið að mjög góðum notum enda erfitt að framkvæma aðgerðir í 35°C hita,” segir Kristján Sturluson framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Rauði krossinn sendi loftkælikerfið og rafstöðvar ásamt 1.000 skyndihjálparpökkum með flugvél á vegum utanríkisráðuneytisins sem sótti alþjóðabjörgunarsveit Landsbjargar.

Skyndihjálpargögnin koma sér einnig vel því þúsundir sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa sett upp fjölda skyndihjálparstöðva á hamfarasvæðinu þar sem fólk getur leitað aðhlynningar vegna minniháttar meiðsla.  Alþjóða Rauði krossinn mun halda áfram að dreifa lyfjum og nauðsynlegum sjúkragögnum til starfhæfra sjúkrahúsa.

Tveir íslenskir sendifulltrúar Rauða krossins eru að störfum á Haítí, þau Hlín Baldvinsdóttir sem er fjármálastjóri fyrir neyðaraðgerðir Alþjóða Rauða krossins og Friðbjörn Sigurðsson læknir sem starfar á tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins. Frétt af starfi Friðbjörns má lesa hér

Neyðarbeiðni Alþjóða Rauða krossins hljóðar upp 12,5 milljarða íslenskra króna til að aðstoða 300,000 manns í 3 ár.
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook