 |
| Hlín Baldvinsdóttir stjórnar fjármálum samhæfingarteymis Alþjóða Rauða krossins. |
Tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands starfa nú að hjálparstörfum á Haítí. Hlín Baldvinsdóttir stjórnar fjármálum samhæfingarteymis Alþjóða Rauða krossins á staðnum og Friðbjörn Sigurðsson læknir starfar í tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins í Port-au-Prince.
Hlín segir að margir hjálparstarfsmenn vinni nánast allan sólarhringinn, einkum hjúkrunarstarfsfólk, enda þarfirnar gífurlegar. Margir hafa verið með brotin bein síðan á þriðjudag í síðustu viku án þess að hafa komist undir læknishendur.
Hjúkrunargögn þau sem sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands pökkuðu í fötur voru því kærkomin og aðstoð rústabjörgunarsveitar Slysavarnafélagsins Landsbjargar við að koma þeim til skila mikils metin.
„Þetta voru frábærir strákar, og stelpa, og ég var djúpt snortin og þakklát fyrir þessa einstöku aðstoð sem við fengum frá þeim – að ógleymdum vörubílunum sem við tókum við af þeim,“ segir Hlín í tölvupósti.
 |
| Friðbjörn Sigurðsson læknir starfar í tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins. |
Á næstunni er gert ráð fyrir að flytja búðir Rauða krossins á byggingarsvæði þar sem áður hafði verið gert ráð fyrir hótelbyggingu. Að minnsta kosti 170 sendifulltrúar Rauða krossins munu búa þar en alls eru um 400 erlendir Rauða kross menn á Haítí.