|
Rauði krossinn hjálpar á Haítí |
Seldu myndir til styrktar börnum á Haítí
19.02.2010
Börnin á leikskólanum Velli í Reykjanesbæ hafa nú bæst í hóp þeirra fjölda barna sem hafa komið börnum á Haítí til hjálpar vegna hamfaranna þar. Öll börnin, bæði lítil og smá teiknuðu myndir og seldu. Foreldrar og aðrir ættingjar keyptu síðan listaverkin og það söfnuðust 34.468 krónur. |
|