 |
| Miname Glaude sjálfboðaliði Rauða krossins í Haítí hjúkrar Michel Laurent 15 mánaða gamalli stúlku. |
Sjálfboðaliðar Rauða krossins á Haítí hafa aðstoðað slasaða íbúa frá því jarðskjálftinn mikli reið yfir fyrir rúmri viku. Sjálfboðaliðarnir hafa bæði unnið á víðavangi þar sem fólk hefur safnast saman, og einnig inni á þeim sjúkrahúsum sem enn eru starfhæf því þau ná engan veginn að annast alla þá sem þangað leita hjálpar.
Þær Michelle Yvétia og Emmanuella Michel hafa gert að sárum 15-200 manns á dag. Þær eru báðar hjúkrunarfræðingar og eru frá Gonavaies héraði á Haítí þar sem fellibylir hafa aftur og aftur valdið miklum usla. Þær eru báðar sjálfboðaliðar Rauða krossins og þekkja afleiðingar hamfara af eigin raun. Þær fóru því eins fljótt og þær gátu til Port-au-Prince til að bjóða fram krafta sína.
Fjölmargir læknar hafa einnig gerst sjálfboðaliðar Rauða krossins til að hjálpa á þessum erfiðu tímum þó að þeir hafi ekki starfað fyrir samtökin áður. En sjúkragögn eru af skornum skammti, og því ljóst að mikil þörf er fyrir skyndihjálpargögnin sem sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands útbjuggu og send voru til Haítí með flugvél á vegum utanríkisráðuneytisins í gær.
 |
| Michelle Yvétia og Emmanuella Michel gera að sárum konu sem slasaðist í jarðskjálftanum. |
Hver og einn sem lifði jarðskjálftann af hefur sína sögu að segja og fjölmörg kraftaverk hafa átt sér stað. Orémise Exantis er ekki í vafa um að hún hafi upplifað eitt slíkt.
„Lítið á höfuðið á mér. Húsið mitt hrundi alveg yfir mig. Það er kraftaverk að ekkert kom fyrir börnin mín,” segir hún.
Yfir 400 manns úr neyðarsveitum Alþjóða Rauða krossins eru nú að störfum á hamfarasvæðunum. Á hverjum degi berast nauðsynleg hjálpargögn og geta Rauða krossins til að veita íbúum hreint vatn og dreifa matvælum eykst.
Færanleg heilsugæsluteymi vinna á hamfarasvæðinu og tjaldsjúkrahús frá norska, þýska, kanadíska og finnska Rauða krossinum hafa verið sett upp við helstu spítala í borginni. Sendifulltrúi Rauða kross Íslands, Friðbjörn Sigurðsson læknir, sem fór einnig út með vél utanríkisráðuneytisins, hóf í morgun störf með sérfræðingum þýska Rauða krossins.
Mikil aðsókn er í tjaldsjúkrahús Rauða krossins, enda fjölmargir sjúklingar sem neita að dvelja inni í sjúkrahúsbyggingunum af ótta við eftirskjálfta. Töluvert mikið er um aflimanir þar sem sýking og drep hleypur auðveldlega í sár enda hreinlætisaðstaða íbúanna afleit. Tvö börn fæddust á norska sjúkrahúsinu í gær, og var annað þeirra tekið með keisaraskurði. Mæðrum og börnum heilsast vel, og voru Rauða kross læknarnir himinlifandi yfir því hvel vel tókst til þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Nýjar myndir frá Alþjóða Rauða krossinum.