|
Ungmennadeildir Rauða kross Íslands
Ungt fólk gegnir mikilvægu hlutverki í starfi Rauða krossins um allan heim. Á undanförnum árum hafa æ fleiri landsfélögum gert sér grein fyrir mikilvægi þess, sbr. stefnu og áætlun Alþjóðasambands landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans í ungmennamálum sem samþykkt var á aðalfundi þess í Kenía 2009:
Ungmennadeildir innan deilda Rauða kross Íslands eru mikilvægur vettvangur þar sem ungt fólk getur komið hugmyndum á framfæri og hlutum í verk.
Meðlimir URKÍ er einstaklingar 35 ára og yngri. Þeir sem hafa áhuga á að starfa sem sjálfboðaliðar innan deildar geta sett sig í samband við hana á sínu svæði. Hægt er að taka þátt í margvíslegum verkefnum í anda grundvallarmarkmiða Rauða krossins og má þar nefna hlutverkaleikinn Á Flótta, skyndihjálparhóp, barnastarf, unglingastarf, aðstoð við geðfatlaða, aðstoð við hreyfihamlaða, átaksverkefnum og margt fleira.
Hægt er að skrá sig á póstlista hér að neðan og mun þú þá fá stuttar fréttir af starfinu ásamt tilboðum um þátttöku í þeim ef svo ber undir.
|
Netklúbbur
Ég vil fá fréttir af starfi ungmennahreyfingar Rauða krossins sendar reglulega í póstlista
|
|