 |
Rauði kross Íslands tekur á móti framlögum til aðstoðar fórnarlömbum jarðskjálfta og flóðbylgju á Kyrrahafseyjum, og fellibyls og flóða á Filipseyjum. Hundruð manna hafa látið lífið á þessum svæðum undanfarna daga og tugir þúsunda eiga um sárt að binda.
Jarðskjálfti sem mældist 8 á Richter reið yfir Samóaeyjar í Kyrrahafinu í gærkvöldi og fylgdi mikil flóðbylgja í kjölfarið. Yfir 100 létust í hamförunum, bæði á Samóaeyjum og nágrannaeyjunni Tonga og fjölda er enn saknað. Hundruð manna hafa misst heimili sín vegna jarðskjálfta og flóða. Þetta er mikið áfall á þessum eyjum þar sem innan við 300.000 íbúar búa.
Helga Bára Bragadóttir, sendifulltrúi Rauða kross Íslands á svæðisskrifstofu Alþjóða Rauða krossins á Fidjí, segir ástandið mjög slæmt. Helga Bára vinnur að forvörnum og neyðarviðbrögðum á þessu svæði og þekkir vel til aðstæðna. Rauði krossinn á staðnum aðstoðar nú fólk sem þurfti að flýja heimili sín.
Þá þurfa um 2 milljónir manna á brýnni aðstoð að halda á Filippseyjum. Sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa unnið hörðum höndum við björgunar- og leitarstörf síðan fellibylurinn Ketsana reið yfir laugardaginn 26. september. Fellibylurinn stefnir nú á Víetnam þar sem óttast er að hann geti valdið miklum usla.
Þeir sem vilja styðja hjálparstarf Rauða krossins í Kyrrahafinu og á Filipseyjum er bent á söfnunarsíma Rauða krossins 904 1500. Þegar hringt er í númerið dragast 1.500 krónur frá næsta símreikningi.