|
Starf í deildum |
Ávaxtaskurður í félagsvinaboði
10.03.2010
Garðabæjardeild Rauða kross Íslands hélt boð fyrir fjörtíu hressar konur í lok febrúar. Konurnar eru allar þátttakendur í verkefninu „Félagsvinur kvenna af erlendum uppruna“ en þar eru leiddar saman íslenskar og erlendar konur með það að markmiði að veita erlendu konunni stuðning við aðlögun, námi og vinnu í íslensku samfélagi. Sonja, tælenskur útskurðarmeistari, var fengin til að kenna örlítið sérstakan útskurð en það er útskurður í melónur, gúrkur og rófur svo eitthvað sé nefnt. Það urðu til mörg fögur listaverk á þessu kvöldi og ekki skemmdi það fyrir að fá gómsætar kökur frá Okkar Bakarí.
Þeir sem vilja vita meira um Félagsvinaverkefnið hjá Garðabæjardeild eru hvattir til að hafa samband við deildina í síma 565-9494 eða í gegnum tölvupóst: erla@redcross.is
|
|