Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Hönnuðir stilla út í Rauðakrossbúðinni 04.03.2010
Gömul snjóbrettamyndbönd voru sýnd í eldgömlu sjónvarpi úr Góða hirðinum.

Fimm tískuhönnuðir sem sýna á tískuhátíðinni Reykjavík Fashion festival, sem fram fer dagana 19. og 20. mars, hafa tekið að sér að sjá um gluggaútstillingu í verslun Rauða krossins við Laugaveg.

Hver hönnuður hefur viku til umráða og hefur algerlega frjálsar hendur með uppstillinguna. Thelma design, með Thelmu Björk Jónsdóttur í fararbroddi, reið á vaðið hinn 18. febrúar og skreytti búðargluggann með nokkrum gömlum höttum. Hattarnir voru valdir úr því sem var í boði í búðinni en einnig gaf Thelma nokkra hatta sjálf í verkið. Hugmyndin var að breyta hinu enska heiti „bag lady“, eða útigangskona, yfir í „hat lady“.

Síðan tók Nikita við 25. febrúar. Það var Helga Lilja Magnúsdóttir sem valdi gluggaskreytinguna.

„Útstillingin í Rauðakrossbúðinni átti að vera í anda Nikita og þar sem við gerum snjóbrettafatnað fyrir stelpur, ásamt hversdagsfatnaði, svokölluðu streetwear, og fínni línu, ákvað ég að leggja þungann á útiveru og skíða- og snjóbrettaiðkun,“ segir Helga Lilja sem fannst einkar skemmtilegt að það skyldi byrja að snjóa daginn sem hún setti upp skreytinguna.

Margir vegfarendur stoppuðu til að virða fyrir sér nýstárlega uppstillingu Thelmu.
 
 Hattarnir voru fjölmargir og litríkir

„Ég fann fullt af skíðagöllum, skíðum, skíðaskóm og vettlingum í Rauðakrossbúðunum og flokkunarstöðinni og ákvað að velja úr þessu nokkra hluti sem pössuðu saman. Ég fann líka, mér til mikillar furðu snjóbrettaskó og gamalt Nikita-eyrnaband,“ segir Helga Lilja glaðlega. Hún bætir við að henni hafi þótt tilvalið að vísa til gamalla tíma en fyrirtækið Nikita byrjaði einmitt í því húsnæði sem Rauðakrossbúðin er í dag.

„Ég fór því í Góða hirðinn, reddaði sjónvarpi á spottprís og sýndi snjóbrettamynd eins og oft var gert í búðinni Týndi hlekkurinn.“
Í dag verður ný útstilling í glugganum eftir Birnu. Síðan verður E-label frá 11. mars og Mundi rekur lestina og verður með útstillingu frá 18. til 24. mars.

solveig@frettabladid.is
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook