 |
| Þátttakendur námskeiðsins með Jóni Brynjari Jónssyni leiðbeinanda. |
Námskeið fyrir fjöldahjálparstjóra Rauða krossins á Norðurlandi var haldið á Húsavík um síðustu helgi og sóttu það tíu manns, allir frá Húsavíkurdeild utan einn frá Ólafsfjarðardeild.
Meirihluti þátttakenda var að endurnýja réttindi sín sem fjöldahjálparstjórar en nokkrir að koma í fyrsta skipti og eru þeir sjálfboðaliðar sérstaklega boðnir velkomnir í hópinn.
Námskeiðið var með hefðbundnum hætti og samanstóð af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Æfðu þátttakendur sig í viðbrögðum við hópslysi og opnun fjöldahjálparstöðvar í kjölfar hamfara.
Stefnan hefur verið sú að halda eitt námskeið á ári á Norðurlandi og halda það til skiptis á austur-, vestur- og miðsvæði. Á síðasta ári náðist að halda tvö námskeið þannig að öll svæðin hafa verið frædd innan árs.