Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Myndbandasamkeppni fyrir ungt fólk 20 ára og yngri 17.02.2010

Hafnarfjarðardeild Rauða krossins efnir til myndbandasamkeppni fyrir ungt fólk 20 ára og yngra. Þátttaka er heimill öllum félögum í Ungmennahreyfingu Rauða krossins af öllu landinu, en ekkert mál er að skrá sig félaga á staðnum.

Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 17:30 verður kynning á viðfangsefni samkeppnirnar sem eru grundvallarmarkmið Rauða krossins. Hér getur þú séð grundvallarmarkmiðin. Þann 25. febrúar kl. 17:30 kemur Gunnar B. Guðmundsson leikstjóri Áramótsins 2009 og Astrópíu og leiðbeinir þátttakendum um framkvæmd verkefnisins.

Þessar kynningar fara fram í Sjálfboðaliðamiðstöðinni Strandgötu 24. Skilafrestur myndbanda er 18. mars og verða úrslit kynnt í mars.
Með innsendum myndböndum þarf að fylgja nafn, heimili, kennitala, símanúmer og tölvupóstfang viðkomandi þátttakenda. 

Taktu þátt!!!!  Vegleg verðlaun!!!!!!

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook