 |
| Garðar H. Guðjónsson fráfarandi formaður Kópavogsdeildar Rauða krossins. |
„Það hefur verið mjög skemmtilegt og gefandi að leiða Kópavogsdeild Rauða krossins í gegnum þær miklu breytingar sem orðið hafa á starfinu á undanförnum árum. Það er góð tilfinning að fara frá starfinu í blóma og geta jafnframt treyst því að uppbyggingunni verði haldið áfram af metnaði. Kópavogsdeild starfar í fjölmennu og öflugu bæjarfélagi og á að vera í fararbroddi innan Rauða krossins,“ segir Garðar H. Guðjónsson sem lét af formennsku í Kópavogsdeild Rauða krossins á aðalfundi í síðustu viku eftir átta ára sjálfboðið starf sem formaður. Ingibjörg Lilja Diðriksdóttir var kjörin formaður en hún hefur setið í stjórn síðan 2005. Hún er fyrst kvenna til að verða formaður deildarinnar.
Garðar var kjörinn í stjórn Kópavogsdeildar 2001 og varð formaður 2002. Hann hafði áður verið kynningarfulltrúi Rauða kross Íslands um árabil. Kópavogsdeild hafði þá einkum getið sér orð fyrir að vera leiðandi í uppbyggingu hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar og stofnun Dvalar, athvarfs fyrir fólk með geðraskanir. Hún hafði einnig verið meðal brautryðjenda í heimsóknaþjónustu sem þá fór einkum fram í Sunnuhlíð. Veikleikar deildarinnar voru hins vegar þeir að hún var lítt þekkt í bæjarfélaginu, hafði ekki sýnilega starfsaðstöðu, sjálfboðaliðar voru fáir og nýliðun lítil sem engin. Þessu vildi ný stjórn breyta.
Hreyfing sjálfboðaliða
„Rauði krossinn er hreyfing sjálfboðaliða og markmið okkar er að auka lífsgæði fólks með sjálfboðnu starfi. Eigi fólk að laðast að slíku starfi getur það ekki farið fram í kyrrþey. Til að fjölga sjálfboðaliðum þurfti þrennt; aukið kynningarstarf, sýnilega starfsaðstöðu í hjarta bæjarins og síðast en ekki síst fjölbreytt og verðug verkefni fyrir sjálfboðaliða á öllum aldri. Þetta gekk allt eftir og markvisst starf hefur skilað því að sjálfboðaliðar deildarinnar nú eru hátt í 500 en voru fáeinir tugir fyrir átta árum,“ segir Garðar.
Samhliða var ráðist í stefnumótun. Ákveðið var að leggja áherslu á að rjúfa einsemd og einangrun fólks, liðsinna fólki með geðraskanir, efla starf fyrir ungt fólk í vanda og auðvelda innflytjendum þátttöku í samfélaginu. Deildin liðsinnti ungu fólki í vanda meðal annars með því að leggja mikla fjármuni í rekstur og uppbyggingu Fjölsmiðjunnar.
Auk þess tekur deildin þátt í alþjóðlegu starfi, leggur sitt af mörkum í neyðaraðstoð og á í vinadeildasamstarfi við Rauða kross deild í Mósambík. Kópavogsdeild tekur einnig virkan þátt í starfi Rauða kross Íslands og átti Garðar sæti í stjórn félagsins 2005-2009. Þá eru margvísleg verkefni unnin í samvinnu við aðrar Rauða kross deildir, til dæmis neyðarvarnir og fatasöfnun. Loks ber að nefna að Kópavogsdeild veitir neyðaraðstoð innanlands í samvinnu við mæðrastyrksnefnd og fleiri.
Deildin opnaði sjálfboðamiðstöð í Hamraborg 11 árið 2003 og réði framkvæmdastjóra til að efla daglegt starf deildarinnar. Þetta skilaði strax sýnilegum árangri og hefur starf deildarinnar vaxið ár frá ári síðan. Þar fer nú fram fjölbreytt starf sjálfboðaliða á öllum aldri. Framkvæmdastjóri og tveir verkefnastjórar halda utan um starfið í samvinnu við sjálfboðaliða.
Að auka lífsgæði
Heimsóknaþjónustan hefur eflst til muna með fjölbreyttari verkefnum og fleiri sjálfboðaliðum á breiðara aldursbili. Áður voru flestir heimsóknavinir eldri konur en á undanförnum árum hefur körlum og yngra fólki fjölgað. Þá tekur fjöldi hundaeigenda þátt með hundum sínum. Til að fjölga körlum í hópi heimsóknavina ákvað Garðar að ganga sjálfur í þeirra hóp og sýna þannig gott fordæmi. Hann hefur í mörg ár heimsótt nokkra heiðursmenn á sambýli aldraðra við Skjólbraut.
„Við hittumst reglulega til að spjalla um það sem okkur liggur á hjarta hverju sinni. Það eru mjög skemmtilegar stundir.“
Þá beindi stjórnin sjónum sínum að ungu fólki. Ungmennastarf hófst 2003 og hefur vaxið stöðugt síðan. Nú býður deildin upp á fjölbreytt ungmennastarf fyrir aldurinn 9-24 ára. Þá sinnir deildin þremur verkefnum sem beinast að innflytjendum. „Það er gaman að sjá ungt fólk ganga til liðs við starfið en þar hefur samstarf okkar við menntaskólana í Kópavogi og Hamrahlíð og Háskóla Íslands verið mikilvægt,“ segir Garðar.
„Það skiptir miklu að sem flestir geti fundið sér leið til þátttöku í starfinu og gefið þannig af sér. Við höfum sjálfboðaliða og þátttakendur á aldrinum 9-90 ára fyrir utan öll tombólubörnin sem styrkja okkur,“ segir Garðar. „Því öflugra sem starfið okkar er því fleiri njóta góðs af því. Tilgangur með starfi Rauða krossins er að auka lífsgæði fólks og það byggist á þeirri grunnhugmynd að fólk hjálpist að. Svo einfalt er það,“ segir Garðar.
Hann segist finna það í samskiptum sínum við aðra sjálfboðaliða að starfið gefur þeim sjálfum mikið.
„Mestu máli skiptir þó auðvitað hvaða áhrif starfið hefur á líf þeirra sem njóta þjónustunnar. Mín umbun fyrir þetta starf eru þau fjölmörgu tilvik þegar ég hef séð og heyrt að líf fólks batnar vegna starfs Rauða krossins. Það hvetur mann til dáða og drífur mann áfram í starfi sem þessu,“ segir Garðar.