Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Rauði krossinn og utanríkisráðuneytið undirrita samstarfsyfirlýsingu 26.02.2010
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Anna Stefánsdóttir formaður Rauða kross Íslands undirrita samstarfsyfirlýsinguna..

Rauði kross Íslands og utanríkisráðuneytið undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu til ársins 2011 um alþjóðlegt hjálparstarf og aukna áherslu á mikilvægi alþjóðlegra mannúðarlaga. Þetta samstarf grundvallast meðal annars á sérstöðu Rauða krossins, sem hefur bæði stoðhlutverk gagnvart stjórnvöldum og lögbundið hlutverk á óvissu- og átakatímum sem kveðið er á um í Genfarsamningunum.

Samkvæmt samstarfsyfirlýsingunni munu utanríkisráðuneytið og Rauði kross Íslands starfa saman að útbreiðslu mannúðarlaga á vettvangi landsnefndar um mannúðarrétt, meðal annars að stuðla að fræðslu um mannúðarlög innan stofnana ráðuneytisins.

Utanríkisráðuneytið hefur með höndum formennsku í nefndinni og Rauði kross Íslands leggur nefndinni til framkvæmdastjóra í 20% starfi og skrifstofuaðstöðu fyrir hann.

„Stofnun landsnefndar um alþjóðleg mannúðarlög var mikilvægt skref sem stigið var árið 2007 í samræmi við sameiginlegt áheit ríkisstjórnar Íslands og Rauða kross Íslands á alþjóðaráðstefnu Rauða krossins 2003. Þar hefur utanríkisráðuneytið verið í forustuhlutverki og bindum við miklar vonir við störf nefndarinnar til framtíðar,” sagði Anna Stefánsdóttir formaður Rauða kross Íslands við undurritun samkomulagsins. „Þar horfum við meðal annars til setningar sérstakra laga um Rauða kross Íslands.”

Að auki veitir utanríkisráðuneytið Rauða krossi Íslands 15 milljón króna fjárstuðning til hjálparstarfs í austanverðri Evrópu, sérstaklega í þeim tilgangi að vinna gegn mansali og reglubundið framlag til Alþjóðaráðs Rauða krossins, samtals 8 milljónir kr. á ári. Þetta er fyrir utan önnur fjárframlög ráðuneytisins til þróunarsamvinnuverkefna og neyðarviðbragða á hamfarasvæðum.

Stjórn Rauða kross Íslands var viðstödd undirritun samstarfsyfirlýsingar utanríkisráðherrana og Rauða krossins.

 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook