Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Fjöldahjálparstöð virkjuð vegna ófærðar í Borgarfirði 26.02.2010

Leitað var til Rauða kross deildarinnar í Borgarfirði í gærkvöldi vegna fjölda manns sem var veðurtepptur og fyrirséð að þyrfti að útvega gistingu. Um 300 manns þurftu að gista í Borgarnesi í nótt vegna ófærðar og slæms veðurs á Vesturlandi, þar af tæplega hundrað grunnskólanemar af höfuðborgarsvæðinu sem gistu í félagsmiðstöðinni Óðali og voru þar á vegum æskuýðsfulltrúa Borgarbyggðar.

Vegna mikillar ófærðar innanbæjar reyndist ekki unnt að opna fjöldahjálparstöð í grunnskólanum, sem er á neyðaráætlun deildarinnar skilgreindur sem fjöldahjálparstöð, en þess í stað var tekið á móti fólki í Menntaskóla Borgarfjarðar og félagsmiðstöðinni Mími sem staðsett er í sama húsi.

Milli 50 og 60 manns gistu í Menntaskólanum  en aðrir höfðu fengið inni á gistiheimilum, hótelum og einhverjir í heimahúsum.

Sjálfboðaliðar voru að störfum til átta í morgun en þá tók starfsfólk Menntaskólans við vaktinni og um 10:00 voru flestir farnir því búið var að ryðja helstu vegi og fólkið gat haldið ferð sinni áfram.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook