Kvótaflóttamenn
Ólíkt Íslandi eru hin Norðurlöndin með fastan kvóta flóttamanna sem er boðin landvist á ári hverju í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Síðasta áratug hafa íslensk stjórnvöld hins vegar nokkuð reglulega boðið flóttafólki landvist hér á landi í samvinnu við Flóttamannastofnun SÞ. Til að mynda var flóttafólki boðið að setjast að á Íslandi á hverju ári frá 1996 til 2005 að árunum 2002 og 2004 undanskildum. Á þessu tímabili komu 247 flóttamenn til landsins í boði stjórnvalda og er móttaka þeirra hér á landi samstarfsverkefni stjórnvalda, Rauða krossins og móttökusveitarfélags.
Hér að neðan má sjá töflu yfir fjölda flóttamanna sem Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð taka á móti ár hvert samkvæmt árlegum „kvóta“.
|
Land
|
Fjöldi flóttamanna á ári
|
|
Finland
|
750
|
|
Noregur
|
1000*
|
|
Svíþjóð
|
1800
|
|
Danmörk
|
500
|
*Noregur er með sveigjanlegan kvóta upp á 3000 flóttamenn yfir þriggja ára tímabil.
|
|