Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Samstarfsaðilar Dvalar

Dvöl er samstarfsverkefni Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands, Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi og Kópavogsbæjar.

Samstarf þessara aðila hefur verið með miklum ágætum. Til að halda sem best utan um starfsemina var skipuð verkefnastjórn sem í situr einn fulltrúi frá hverjum aðila ásamt forstöðumanni athvarfsins.

Dvöl hefur átt samvinnu við félagskerfi  og heilsugæslustöðvar Kópavogs, Hafnarfjarðar og geðsvið Landspítala Háskólasjúkrahúss. Öll slík samvinna hvað varðar gesti Dvalar er algjörlega á forsendum gestanna. 

Þá eru reglulegir samráðsfundir milli starfsmanna athvarfa Rauða krossins fyrir geðfatlaða sem í dag eru fjögur talsins - Dvöl í Kópavogi, Vin í Reykjavík, Lækur í Hafnarfirði og Laut á Akureyri. Tilgangur Rauða krossins með rekstri athvarfa fyrir geðfatlaða er að rjúfa einangrun, bjóða upp á hlýlegan samverustað og koma í veg fyrir endurinnlagnir á geðdeild. 

Samvinna við Klúbbinn Geysi, Geðhjálp, Fjölmennt og Öryrkjabandalagið er nauðsynleg þar sem þessir aðilar sinna sama málaflokki.